Almannavarnir
Almannavarnir snúast um það skipulag og stjórnkerfi sem er virkjað á hættustundu, hvort sem um er að ræða hættu frá náttúrunni eða af mannavöldum. Samkvæmt 1. gr. laga um almannavarnir nr. 94/1962 er hlutverk þeirra að skipuleggja og framkvæma ráðstafanir sem miða að því að koma í veg fyrir eftir því sem unnt er að almenningur verði fyrir líkamstjóni eða eigna af völdum hernaðaraðgerða, náttúruhamfara eða af annarri vá, veita líkn og aðstoð vegna tjóns, sem orðið hefur, enda falli þau störf ekki undir aðra aðila samkvæmt lögum.
Löggjöfin kveður á um víðtækt samstarf við aðila sem hafa það sameiginlega markmið að tryggja öryggi almennings með öflun upplýsinga ásamt vöktun, greiningu og mati á hættu.
Til að takast á við það hlutverk sem lögin gera ráð fyrir þurfa almannavarnir m.a.:
- að greina og meta hugsanlegar afleiðingar náttúruvár, hópslysa, fjarskipta- og tölvuhruns, auk hryðjuverka
í samstarfi við hlutaðeigandi aðila
- að upplýsa almenning um hættur í þjóðfélaginu, hvernig eigi að varast þær og draga úr afleiðingum þeirra.
- að vara almenning við yfirvofandi hættu í þjóðfélaginu og hvernig almenningur skuli bregðast við
- að hafa umsjón með að viðbragðsráætlanir og rýmingaráætlanir séu útbúnar í samvinnu við hlutaðeigandi aðila
- að samhæfa, undirbúa og framkvæma æfingar
- að bregðast hratt og örugglega við neyðarástandi og sjá til þess að úrræði séu til staðar
- að stjórna aðgerðum þegar neyðarástand skapast í landinu
- að vinna með viðbragðsaðilum, almenningi, vísindamönnum og stjórnvöldum með það að markmiði að lágmarka tjón af
völdum áfalla
- að aðstoða við enduruppbyggingu eftir áfall og koma aftur á eðlilegu ástandi í samvinnu við hlutaðeigandi aðila
- að vinna á alþjóðlegum vettvangi að uppbyggingu og eflingu almannaöryggis.