Fara í efni

Húsbruni á Þórshöfn

30.apríl 2006Íbúðarhúsið Bergholt við Langanesveg 17-a á Þórshöfn brann aðfaranótt sunnudagsins 30. apríl og er talið hafa gjöreyðilagst. Enginn var í húsinu, sem má teljast mikil mildi. Eldsins 30.apríl 2006

Íbúðarhúsið Bergholt við Langanesveg 17-a á Þórshöfn brann aðfaranótt sunnudagsins 30. apríl og er talið hafa gjöreyðilagst. Enginn var í húsinu, sem má teljast mikil mildi.

 
Eldsins varð fyrst vart laust eftir miðnætti, stuttu fyrir hálf eitt, þegar tveir menn áttu leið eftir Langanesveginum og sáu töluverðan reyk leggja frá húsinu. Annar þeirra er starfandi slökkviliðsmaður á Þórshöfn og þeir fóru þegar að húsinu til að kanna málið. Þegar þeir opnuðu útidyrnar blasti við eldhaf og sprenging varð þegar í stað og gluggarúður hússins splundruðust. Þegar hringdu strax í slökkviliðið sem var fljótt á vettvang.
Illa gekk að ráða niðurlögum eldsins, einkum vegna byggingarlags hússins. Þetta er gamalt húss, upphaflega byggt c. a.kringum 1925-1930, að sögn eiganda en hefur verið mikið endurgert. Húsið er að hluta steinsteypt og að hluta úr timbri og hefur verið klætt þannig að utan að einangrun og klæðning var sett utan á gamla húsið og sama lag var haft við þakið, svo segja má að nýtt hús hafi verið byggt utan um það gamla. Eldurinn kraumaði því þarna alls staðar þarna á milli og gekk ekki að slökkva hann fyrr en þakið var rofið með stórri vinnuvél.
Slökkviliðsmenn vöktuðu húsið allt til morguns en það stendur mjög nærri tveimur öðrum húsum.
Að sögn lögreglu eru eldsupptök ókunn.


22.febrúar 2006