Fara í efni

Mikið fjör á kátum dögum

Íþróttir
Mikið er búið um að vera á Kátum dögum sem nú standa yfir á Þórshöfn. Þar á meðal var frumsýning á stuttmyndunum Þokufjallið (Misty Mountain) og Nesið eftir Óttar Vignisson. Fullt var út úr húsi í Þór

Mikið er búið um að vera á Kátum dögum sem nú standa yfir á Þórshöfn. Þar á meðal var frumsýning á stuttmyndunum Þokufjallið (Misty Mountain) og Nesið eftir Óttar Vignisson.

Fullt var út úr húsi í Þórsveri og komust færri að en vildu á þessa heimsfrumsýningu.

Myndirnar verða endursýndar á sunnudagskvöldið kl 20:00 í Þórsveri fyrir þá sem ekki komust inn á föstudagskvöldið.