Fara í efni

Neyðarkallar

 3. nóvember 2006 Helgina 3. til 5. nóvember munu björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar fara af stað með fjáröflun um allt land. Meðlimir sveitanna munu selja lítinn neyðarkall.

 3. nóvember 2006
 Helgina 3. til 5. nóvember munu björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar fara af stað með fjáröflun um allt land. Meðlimir sveitanna munu selja lítinn neyðarkall. Hver neyðarkall kostar aðeins 1000 kr.
Hagnaður af sölunni mun renna til sveitanna og Slysavarnafélagsins Landsbjargar og verður hann notaður til að efla og styrkja þjálfun björgunarsveitarmanna landsins.
Í gegnum tíðina hefur almenningur haft mikinn skilning á störfum björgunarsveita enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tækni og þekkingu.
En þrátt fyrir að meðlimir björgunarsveitanna séu allir sem einn sjálfboðaliðar er rekstur þeirra dýr. Þjálfa þarf björgunarsveitarfólk, tæki og tól verða að vera tiltæk og í góðu lagi, húsnæði þarf undir búnað og olíu á tækin. Fjármagns er aflað með ýmsum hætti t.d. sölu flugelda, dósasöfnun, gæsluverkefnum, jólatréssölu og ýmsu öðru. Og nú bætist neyðarkallinn við.
Við vonum að landsmenn taki meðlimum björgunarsveitanna opnum örmum og styðji þannig við bakið á fórnfúsu starfi þeirra þúsunda björgunarsveitarmanna sem eru til taks allan ársins hring þegar samborgarar þeirra þurfa á aðstoð að halda. 

Miklar þakkir fyrir.