Fara í efni

Óskað eftir tilboði í flutning lagnaefnis!

Fundur
10.05.2007Vegna fyrirhugaðra framkvæmda við vatnsveitu á Bakkafirði er óskað eftir tilboðum í flutning á lagnaefni frá Reykjavík / Selfossi til Bakkafjarðar. Frekari upplýsingar varðandi efnismagn o.f

10.05.2007
Vegna fyrirhugaðra framkvæmda við vatnsveitu á Bakkafirði er óskað eftir tilboðum í flutning á lagnaefni frá Reykjavík / Selfossi til Bakkafjarðar. Frekari upplýsingar varðandi efnismagn o.fl. eru veittar á skrifstofu Langanesbyggðar á Bakkafirði, sími 473 1686 eða 866 7813.

Tilboðum skal skila í lokuðum umslögum merktum FLUTNINGUR Á LAGNAEFNI á skrifstofu Langanesbyggðar, Skólagötu 5, 685 Bakkafirði og skulu þau berast fyrir 20. maí nk. Tilboð verða opnuð á sama stað í votta viðurvist kl. 12:15 mánudaginn 21. maí nk. og gefst tilboðsgjöfum, sem þess óska, kostur á að vera viðstaddir. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að hafna öllum fram komnum tilboðum!