6 nýjar íbúðir til sölu á Þórshöfn
V Laugavegur ehf. auglýsir 6 nýjar og fallegar þriggja
herbergja íbúðir við Miðholt 9-19 á Þórshöfn.
Íbúðirnar eru allar um 92m2.
Hver íbúð skiptist í tvö svefnherbergi, stofu, gang, forstofu, eldhús, baðherbergi og geymslu.
Lóð:
Lóð
verður slétt og skilað með grasþökum og malarfyllingu (perlumöl í efsta
lagi) á bílastæði. Fyrir framan inngang verður hellulagt með 30x30 sm hellum.
Við inngangsstétt verður forsteypt opið ruslaskýli. Gert er ráð fyrir síðar verði
hægt að leggja hitalagnir í bílaplan og inngang, sem og lögnum að heitum potti.
Útveggir:
Útveggir eru úr forsteyptum
samlokueiningum og eru byggðir upp með 13 sm burðarvegg, 100 mm einangrun og 7 sm veðurkápu. Gluggar ertu
tré-ál gluggar með k gleri. Útihurð er 3 punkta með Assaskrá og hún.
Brunaveggir
á milli húsa:
Á milli íbúða er veggþykkt 2x13 sm,
með steinullarkjarna (heildarþykkt 30cm). Hefðbundnir innveggir eru gerðir úr 7
sm stálleiðurum og uppistöðum sem klæðast með 2x13 mm gifsplötum og fylltir
steinull til hljóðeinangrunar.
Gólfefni:
Flísar
eru á forstofu, baðherbergi og vaskahúsi. Geymslugólf er málað. Öll önnur gólf
eru lögð með með plastparketi.
Eldhústæki:
Íbúðirnar afhendast með eldavél með keramik
helluborði og innbyggðum bökunarofni frá AEG. Hreinlætistæki eru frá Tengi ehf.
Hita og
neyslulagnir:
Gólfhitalagnir eru 20 mm plexlagnir, ísteyptar í
gólfplötu. Neysluvatnslagnir eru álplexlanir í ídráttarbarka, ísteyptar í
gólfplötu. Húshitun er rafhitun á gólfgeisla. 6 kw hitatúpa er fyrir gólfhita
og 200 ltr. hita- og neyslukútur, hvorutveggja staðsett í þvottahúsi.
Innréttingar:
Innréttingar
eru frá Brúnás Egilsstöðum og eru með eikaáferð. Innihurðar eru þýskar
yfirfelldar Ringo hurðir frá Parka.
Verð: 21.900.000
Allar
nánari upplýsingar gefur Bjarki Gunnlaugsson í síma 863-7776
bjarki@gunnlaugsson.is