Á fundi byggðaráðs Langanesbyggðar þriðjudaginn 4. nóvember 2008
Var eftirfarandi bókun samþykkt samhljóða m.a.:
Í ljósi fregna af fyrirhuguðum niðurskurði í framkvæmdum við nauðsynlegar samgöngubætur á landsbyggðinni, t.d. með frestun Vaðlaheiðargangna og tengivegar af hringvegi í Vopnafjörð, með vísan til erfiðs efnahagsástands, vill byggðaráð Langanesbyggðar vekja athygli stjórnvalda á því að með þessu er verið að höggva þar sem síst skildi.
Það að falla frá löngu tímabærum framkvæmdum á svæðum sem hafa þurft að lifa við efnahagslegan samdrátt á umliðnum árum geta vart talist eðlileg viðbrögð sem mótvægi við samdrætti á svæðum sem hafa lifað við ofurþenslu á sama tíma.
Á þeim tímum sem nú fara í hönd skiptir sköpum fyrir þjóðarbúið að hjól atvinnulífsins á landsbyggðinni nái að snúast með eðlilegum og auknum krafti. Stuðla þarf að því að framleiðslufyrirtæki í sjávarbyggðum, sem eru til þess fallin að auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar, njóti eins góðra aðstæðna og mögulegt er. Liður í því er að efla samgöngukerfið og flýta frekar en að seinka þeim samgöngubótum sem eru til þess fallnar.
Byggðaráð Langanesbyggðar hvetur því stjórnvöld til að endurskoða ákvarðanir varðandi frestun framkvæmda er lúta að styrkingu samgöngunetsins.
Framangreindu er hér með komið á framfæri.
Með bestu kveðjum
Björn Ingimarsson
sveitarstjóri
Langanesbyggð
S: 468 1220, 895 1448