Aðalfundur bjsv.Hafliða
AÐALFUNDUR
Björgunarsveitarinnar Hafliða
Hinn árlegi og að sjálfsögðu skemmtilegi aðalfundur Björgunarsveitarinnar Hafliða verður haldinn fimmtudaginn 22. maí 2014 og verður fundurinn haldinn í Hafliðabúð og hefjast herlegheitin kl. 18:30. Allir velkomnir á fundinn, ungir jafnt sem aldnir. Enginn neyddur í stjórn né nefndirJ. Að fundi loknum verður boðið upp á pítsuveislu.
Dagskrá
1) Fundarsetning
2) Kosning fundarstjóra og fundarritara
3) Skýrsla stjórnar
4) Reikningar félagsins lagðir fram
5) Lagabreytingar
6) Ákveða árgjald
7) Kosning stjórnar
8) Önnur mál
Vonumst til að sjá sem flesta félaga og eigum góða og skemmtilega stund saman þar sem við förum yfir mál Hafliða í máli, myndum og tölum.
Stjórn
Björgunarsveitarinnar Hafliða