Fara í efni

Aðalfundur ferðafélagsins Norðurslóðar

Fundur
Aðalfundur Ferðafélagsins Norðurslóðar verður haldinn í því fornfræga húsi Sauðaneshúsi á Langanesi sunnudaginn 4. mars n.k. Mæting er kl. 13:00 við Sauðaneshúsið þaðan sem verður farið í stutta göngu

Úr göngu- og skíðaferð Norðurslóðar í Ásbyrgi í mars 2011

Aðalfundur Ferðafélagsins Norðurslóðar verður haldinn í því fornfræga húsi Sauðaneshúsi á Langanesi sunnudaginn 4. mars n.k. Mæting er kl. 13:00 við Sauðaneshúsið þaðan sem verður farið í stutta göngu og síðan hefst fundurinn, eða um kl. 14:00.

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, svo sem skýrsla stjórnar og reikningar, inntaka nýrra félaga, kosningar og önnur mál, auk kynningar á ferðaáætlun Norðurslóðar 2012.
Gestur fundarins verður Þórhallur Þorsteinsson frá Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs sem segir frá skálabyggingum félagsins og fleiru. Eftir fundinn fá fundargestir leiðsögn um Sauðaneshúsið.

Fundurinn er öllum opinn. Öllum er velkomið að koma og kynna sér félagið.

Ferðafélagið Norðurslóð var stofnað 21. apríl 2009. Félagssvæðið er úr Kelduhverfi í vestri að Bakkafirði í austri. Félagið vill stuðla að ferðalögum um starfssvæði sitt og greiða fyrir þeim. Félagið er sjálfstæð deild í Ferðafélagi Íslands, sem þýðir að félagsmenn njóta allra sömu réttinda og félagar FÍ. Félagsmenn FÍ njóta umtalsverðra fríðinda. Má þar nefna Árbók félagsins sem er innifalin í árgjaldi. Afslátt í ferðir félagsins, afslátt í gistingu í skála félagsins sem og í skála ferðafélaga á norðurlöndum, afslátt í fjölda verslana og fróðlegra upplýsinga um ferðalög.