Fara í efni

Aðdáunarvert framtak

Fréttir
Mynd: Karitas Agnarsdóttir
Mynd: Karitas Agnarsdóttir

Þær Dögun Rós Steinarsdóttir og Helena Potrykus eru hugmyndaríkar stúlkur sem búa á Þórshöfn en þær stofnuðu Smálandaleikhúsið einar síns liðs. Nýverið settu þær upp leiksýninguna Emil og Ída í Kattholti. Dögun og Helena fóru sjálfar með aðalhlutverk en fengu þær Írenu Móey Þorsteinsdóttur og Alexöndru Potrykus til að fara með aukahlutverk. Þá vantaði þær einnig leikara til að fara með hlutverk pabba hans Emils en þær dóu ekki ráðalausar, heldur báðu Odd Skúlason, starfsmann íþróttamiðstöðvarinnar á Þórshöfn að taka hlutverkið að sér. 

Þær fengu íþróttahúsið á Þórshöfn lánað til að halda sýningarnar og áhorfendur greiddu fyrir miða sína. Vinkonurnar voru alltaf ákveðnar í að styrkja gott málefni en að sögn Odds var handritið klárt áður en stríðið í Úkraínu braust út. 

Stúlkunum hefur tekist að safna alls 117 þúsund krónum sem þær ætla að leggja inn á Rauða krossinn. Önnur sýningin fór fram í gær en leikararnir voru með Úkraínu fánann á handarbakinu. Í upphafi lögðu þær upp með að halda sex sýningar en hafa ekki ákveðið framtíðar dagsetningarnar enn sem komið er.