Fara í efni

Áfangastaðaáætlun Norðurlands á vefnum.

Fréttir

Áfangastaðaáætlun Norðurlands hefur nú verið gefin út á vefnum í fyrsta sinn, á sérstöku vefsvæði, sem unnið hefur verið í samstarfi við Ferðamálastofu og Markaðsstofur landshlutanna. Hingað til hafa áfangastaðaáætlanir verið gefnar út í PDF skjölum, sem aðgengileg hafa verið á vefnum, en þessi nýja birtingarmynd er mun aðgengilegri og mun auðvelda frekari uppfærslur.

Ný áætlun var gefin út í nóvember á liðnu ári og hefur hún nú verið sett inn í heild á nýja vefsvæðið. Það á við um stefnuáherslur, tölfræði, stöðugreiningu og lýsingu helstu þróunar- og uppbyggingarverkefna. Tölfræði um stöðu ferðaþjónustu á Norðurlandi er nú sett fram á gagnvirkum myndritum og einnig er sú nýjung á vefsvæðinu að hægt er að sjá stöðu hvers og eins uppbyggingarverkefnis. Þannig eru þau merkt græn ef þau eru á framkvæmdastigi, gul ef þau eru í undirbúningi og grá þegar þeim hefur verið lokið. Þessa dagana er verið að afla nýjustu upplýsinga frá sveitarfélögum á Norðurlandi um stöðu uppbyggingarverkefna, svo efni vefsins gefi sem gleggsta mynd af stöðu innviðauppbyggingar í landshlutanum.

Áhersla er lögð á að nýja vefsvæðið verði eins notadrjúgt og kostur er og að áfangastaðaáætlun sé lifandi plagg, ef svo má að orði komast. Allar ábendingar um hvað betur megi fara eða hvernig þróa megi vefsvæðið áfram eru vel þegnar.
Hér er tengill á áætlunina:

https://www.northiceland.is/afangastadaaaetlun