Allsherjar útkall um allt land
Styðjum björgunarsveitirnar með því að kaupa af þeim flugeldana!
Munum að fara varlega, nota öryggisgleraugu svo við getum átt slysalaus og gleðileg áramót.
Grein úr fréttablaðinu
Klukkan þrjú í fyrrinótt var Samhæfingarmiðstöð Almannavarna í Skógarhlíð virkjuð til að samræma störf lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita. Þegar leið að morgni var búið að kalla út allar björgunarsveitir höfuðborgarsvæðisins.
Þetta var þriðja stóra útkall vikunnar vegna aftakaveðurs. Þriðju nóttina í vikunni stóðu sjálfboðaliðar í björgunarsveitum landsins í stórræðum við hliðina á atvinnumönnunum í lögreglunni og slökkviliðinu. Flugvélar voru bundar niður á Reykjavíkurflugvelli, krossviðarplötur negldar fyrir brotna glugga í heimahúsum og skriðið upp á þök í miðju veðravítinu til að festa niður flaktandi bárujárnsplötur. Á Vestfjörðum fóru björgunarsveitarmenn í þreifandi byl upp á Steingrímsfjarðarheiði til hjálpar fólki sem sat fast í bílum sínum.
Svona er hægt að halda lengi áfram. Í hverjum landshluta voru unnin álíka hetjuverk í vikunni......
Björgunarsveitarfólk um allt land hefur enn einu sinni sýnt að starf þess er algjörlega ómetanlegt fyrir samfélagið hér á hjara veraldar.Nú vill svo til að fram undan er lykiltími í starfi björgunarsveita landsins. Þrátt fyrir að starfi þeirra sé fyrst og fremst haldið uppi með ótrúlega óeigingjörnu og fórnfúsu sjálfboðaliðastarfi þurfa björgunarsveitirnar líka beinharða peninga til ýmissa tækjakaupa. Þetta er ekki ódýr útgerð.
Flugeldasala fyrir áramót er mikilvægur tekjupóstur í fjáröfluninni. Ýmis félög og samtök hafa undanfarin ár teygt sig inn á þann markað og þar með þrengt að svigrúmi björgunarsveitanna til að útvega sér rekstrarfé. Meðal keppinauta björgunarsveitanna eru íþróttafélögin. Þar er líka á ferðinni gott málefni og að sjálfsögðu er ekkert við það að athuga þótt einhverjir vilji styðja sitt félag. Um leið má þó stinga upp á að viðkomandi deili viðskiptum sínum og láti björgunarsveitirnar líka njóta yfirvofandi skotgleði.
Slysavarnafélagið Landsbjörg er landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda. Innan félagsins starfa um átján þúsund manns í björgunarsveitum, slysavarnadeildum og unglingadeildum. Allt það fólk á inni hjá okkur hinum að við leggjum okkar af mörkum til þess að það hafi til umráða besta mögulega búnað við aðstæður sem geta verið lífshættulegar þegar verst lætur.
Við Íslendingar búum á mörkum hins byggilega heims. Náttúruöflin eiga það til að hnykla vöðvana með meiri krafti hér en víða annars staðar. Háskinn getur komið upp úr jörðinni, ofan úr fjalli, af hafi eða himnum. Við þær aðstæður er gott að geta treyst á samtakamátt fjöldans sem starfar undir merkjum Landsbjargar.
Ef veðurspárnar ganga eftir mun fólk úr þeim hópi verða næst í eldlínunni strax á morgun þegar spáð er að fjórða óveðurslægðin á einni viku gangi yfir landið.
Allsherjar útkall okkar hinna er á flugeldasölustaði björgunarsveitanna fyrir áramót.
Jón Kaldal.