Alþingiskosningar 28. október
21.09.2017
Fréttir
Alþingiskosningar verða 28. október nk. Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis er viðmiðunardagur kjörskrárstofns 5 vikum fyrir kjördag
Alþingiskosningar verða 28. október nk. Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis er viðmiðunardagur kjörskrárstofns 5 vikum fyrir kjördag sem þýðir að viðmiðunardagur að þessu sinni er 23. september sem er næstkomandi laugardagur.
Mikilvægt er því að allar þær breytingar sem þarf að gera á skráningu lögheimilis verði gerðar fyrir lok föstudagsins 22. september.
Þær lögheimilisbreytingar sem berast eftir viðmiðunardag fara ekki inn á kjörskrárstofn.