Fara í efni

Ályktun sveitarstjórnar um Vaðlaheiðargöng

Fundur
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi sveitarstjórnar Langanesbyggðar 9. febrúar:Sveitarstjórn Langanesbyggðar skorar á stjórnvöld að samþykkja ríkisábyrgð á fjármögnun framkvæmda við Vaðlaheiðarg

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi sveitarstjórnar Langanesbyggðar 9. febrúar:

Sveitarstjórn Langanesbyggðar skorar á stjórnvöld að samþykkja ríkisábyrgð á fjármögnun framkvæmda við Vaðlaheiðargöng, svo hefja megi framkvæmdir sem fyrst.

Vaðlaheiðargöng munu bæta búsetuskilyrði í sveitarfélögunum austan Vaðlaheiðar til muna; þau verða mikil samgöngubót með tilheyrandi kostum fyrir atvinnulíf á svæðinu, ekki síst ferðaþjónustu. Þá mun umferðaröryggi aukast með tilkomu gangnanna og aðgengi að hverskonar þjónustu, sem íbúum þessara sveitarfélaga stendur ekki til boða í heimabyggð, s.s. ýmiskonar heilbrigðisþjónustu, mun batna verulega.

Það skiptir miklu máli fyrir jaðarbyggðir á borð við Langanesbyggð að samgöngur til og frá sveitarfélaginu séu í góðu lagi. Í sveitarfélaginu er stunduð öflug útgerð og fiskvinnsla og þar fer fram mikil verðmætasköpun. Ætla má að verðmæti þeirra sjávarafurða sem framleiddar voru í Langanesbyggð á síðasta ári séu vel á sjötta milljarð króna. Íbúum sveitarfélagsins hefur fjölgað, meðalaldur þeirra lækkað og skatttekjur á hvern íbúa hækkað umtalsvert á síðustu árum. Íbúar sveitarfélagsins þurfa aftur á móti að leggja í verulegan kostnað til að sækja ýmiskonar þjónustu sem aðrir landsmenn, einkum íbúar á suðvesturhorni landsins, telja sjálfsagða og auðfengna. Samgöngur á tímum síhækkandi eldsneytisverðs eru mjög dýrar og því situr landsbyggðin ekki við sama borð og íbúar höfðuborgarsvæðisins hvað varðar aðgengi að þessari þjónustu.

Vaðlaheiðargöng munu leysa af hólmi Víkurskarð, sem er mikill farartálmi á veturna. Veigrar fólk sér við að fara um skarðið ef veðurútlit er ekki gott og frestar t.a.m. læknisheimsóknum, oft með slæmum afleiðingum. Fyrir skemmstu tók það sjö klukkustundir að koma sjúklingi á sjúkrahús á Akureyri eftir vinnuslys á Þórshöfn, ekki síst vegna ófærðar á Víkurskarði. Þar sem ekki var hægt að flytja hinn slasaða til Akureyrar með flugi vegna veðurs, var hann því sendur af stað með sjúkrabíl. Í ljósi boðaðs niðurskurðar á sjúkrahúsinu á Húsavík er enn brýnna að greið leið sé fyrir sjúklinga til Akureyrar frá svæðunum austan Vaðlaheiðar. Í skriflegu svari Guðbjarts Hannessonar, velferðarráðherra, við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar á Alþingi nýverið, kom auk þess fram að konur á Þórshöfn á Langanesi eiga um lengstan veg að fara til að fæða börn á sjúkrahúsi en frá Þórshöfn eru um 250 km til Akureyrar og jafnlangt til Neskaupstaðar.