Áramót og flugeldar
Flugeldasala verður í Hafliðabúð á eftirfarandi dögum:
Laugardaginn 29. desember kl. 14.00 til 18.00
Sunnudaginn 30. desember kl. 14.00 til 18.00
Mánudaginn 31. desember kl. 11.00 til 14.00
Áramótabrennan byrjar kl. 20.30 og verður núna á Ytritanga (Borgartanga) við Ytri-Brekkur. Ath. breytta staðsetningu.
Flugeldasýningin verður kl. 21.00 við Fossá á meðan brennunni stendur. Mögulega þarf að loka þjóðveginum á meðan og brennugestir eru því beðnir um að vera rólegir á brennustað og horfa á sýninguna þaðan. Fyrir þá sem ekki koma á brennuna er upplagt að vera á Hafnarsvæðinu eða á Fjarðarvegi. Við stefnum að okkar stærstu sýningu.
Við hvetjum alla til að fara gætilega með eld og flugelda.
Við óskum öllum gleðilegra jóla og þökkum fyrir stuðninginn á árinu.
Björgunarsveitin Hafliði