Áramót og flugeldar
31.12.2013
Fréttir
Að vanda mun björgunarsveitin Hafliði mun sjá um flugeldasölu, áramótabrennu og flugeldasýningu.
Flugeldasala verður í Hafliðabúð á eftirfarandi dögum:
Sunnudagur 29. desember kl. 13.00 til 16.00
Mánudagur 30. desember kl. 16.00 til 20.00
Þriðjudagur 31. desember kl. 10.00 til 14.00
Áramótabrennan byrjar kl. 20.30 og verður hún út á Hjallamel í landi Syðra-Lóns.
Flugeldasýningin verður kl. 21.30 við grindarhlið á Fjarðarvegi (á túninu við Vegamót) og mun því verða í lok brennunnar. Upplagt er að horfa á sýninguna frá hafnarsvæðinu. Við stefnum að okkar stærstu sýningu.
Um leið og við hvetjum alla til að fara gætilega með eld og flugelda óskum við öllum gleðilegra jóla og þökkum fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða.
Björgunarsveitin Hafliði