Árshátíð Bakkafirði
08.05.2015
Fréttir
Hrói höttur ásamt félögum úr ýmsum ævintýrum verða í grunnskólanum á Bakkafirði næstkomandi föstudag
Árshátíð Grunnskólans á Bakkafirði verður haldin með pompi og prakt föstudaginn 8.maí kl. 18.00. Þá munu nemendur skólans sína leikritið Hróa hött eftir Leikhópinn Lottu.
Einnig munu emendur í Tónlistarskóla Langanesbyggðar spila nokkur lög.
Miðaverð er:
2000 kr. fyrir 16 ára og eldri
1000 kr. fyrir 6-15 ára
500 kr fyrir leikskólabörn 3-5 ára
Frítt fyrir 0-2 ára
Að sýningu lokinni verður boðið upp á kjötsúpu.
Sjáumst hress og kát á föstudaginn
Nemendur og starfsfólk Grunnskólans