Árshátíð í Grunnskólanum á Þórshöfn
20.03.2012
Fundur
Árshátíð Grunnskólans á Þórshöfn verður í félagsheimilinu Þórsveri á morgun, miðvikudag, klukkan 18:00. Undirbúningur er í fullum gangi, - söng-, leik- og dansæfingar og skólablað í smíðum. Pabbar og
Árshátíð Grunnskólans á Þórshöfn verður í félagsheimilinu Þórsveri á morgun, miðvikudag, klukkan 18:00. Undirbúningur er í fullum gangi, - söng-, leik- og dansæfingar og skólablað í smíðum. Pabbar og mömmur, afar og ömmur, systkini, frændur og frænkur, allir hjartanlega velkomnir.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur fyrir fullorðna, frítt fyrir 16 ára og yngri. Einnig verður skólablaðið selt við innganginn á 1.000. krónur, Athugið að ekki er tekið við kortum.