Fara í efni

Atvinna í boði

Fréttir
Langanesbyggð
Langanesbyggð
Langanesbyggð óskar eftir að ráða starfsmann í 20% starf við félagslega heimaþjónustu á Bakkafirði.

Félagsleg heimaþjónusta

Langanesbyggð óskar eftir að ráða starfsmann í 20% starf við félagslega heimaþjónustu á Bakkafirði.
Með félagslegri heimaþjónustu er átt við hvers konar aðstoð við heimilishald, persónulega aðstoð og félagslegan stuðning, efla viðkomandi til sjálfsbjargar með það að markmiði að búa sem lengst heima við sem bestar aðstæður.
Nauðsynlegt er að umsækjandi sé íslenskumælandi og æskilegt að viðkomandi sé eldri en 20 ára.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Þórshafnar.
Deilarstjóri félagslegrar heimaþjónustu Fanney Hreinsdóttir veitir allar nánari upplýsingar er starfið varðar í síma 464-6132 eða fanney@nordurthing.is

Viðkomandi þarf að hefja störf sem allra fyrst.
Umsóknarfrestur er til 26. ágúst 2015.

Umsóknir berist á netfangið nina@langanesbyggd.is eða til skrifstofu Langanesbyggðar,
Fjarðarvegur 3
680 Þórshöfn
Sími 468-1220