Atvinna í boði
Verkalýðsfélag Þórshafnar auglýsir eftir starfsmanni á skrifstofu félagsins í 65% starf.
Hæfniskröfur: Heiðarleiki, þjónustulund og tölvukunnátta, reynsla af skrifstofustörfum er kostur. Þarf að geta hafið störf í ágúst 2016.
Starfið er nokkuð fjölbreytt og skemmtilegt, vinnutími samkomulagsatriði að einhverju leyti. Laun skv.kjarasamningi Landssambands ísl.verslunarmanna.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu VÞ Langanesvegi 18, 680 Þórshöfn eða í tölvupósti á verkthor@simnet.is fyrir 10.júlí.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristín í síma 468 1160.
Stjórn Verkalýðsfélags Þórshafnar vill nota tækifærið og þakka núverandi starfsmanni, Kristínu Kristjánsdóttur, fyrir frábærlega vel unnin störf síðastliðin 15 ár, og óskum við henni alls hins besta í framtíðinni.
Þórshöfn 20.06 2016
Stjórn VÞ