Atvinna í boði
05.12.2023
Fréttir
Við á hjúkrunarheimilinu Nausti óskum eftir að ráða til okkar í eftirfarandi störf:
- Afleysing í eldhús
- Afleysing í aðhlynningu
- Fastar næturvaktir
Naust er hjúkrunar- og dvalarheimili með rými fyrir 14 íbúa.
Við leggjum áherslu á að hafa notalegt og heimilislegt andrúmsloft.
Hæfniskröfur:
- Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 18 ára aldri
- Jákvæðni og vinnusemi
- Sjálfstæði og stundvísi
- Góð færni í samskiptum og áhugi á að starfa með eldra fólki
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 13 desember 2023
Umsóknum skal skilað á netfangið dvalarheimilid.naust@langanesbyggd.is
Nánari upplýsingar veitir Herdís Eik Gunnarsdóttir, forstjóri í síma 468-1322 eða á netfangið dvalarheimilid.naust@langanesbyggd.is