Atvinnu-, menningar- og ferðamálanefnd:
Aðalmenn:
Karen Rut Konráðsdóttir, formaður
Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, varaformaður
Stefán Benjamínsson
Þórir Jónsson
Björn Guðmundur Björnsson
Varamenn:
Hrafngerður Elíasdóttir
Rúnar Konráðsson
Eyþór Atli Jónsson
Jón Viðar Brynjólfsson
Sigríður Ósk Indriðadóttir
Erindisbréf í nánar.
Erindisbréf atvinnumálanefndar
Langanesbyggðar.
Samkvæmt 14. tl. 57. gr. samþykkta um stjórn og fundarsköp Langanesbyggðar: 1. Atvinnumálanefnd skal sinna stefnumótunarverkefnum í atvinnumálum hjá Langanesbyggð á hverjum tíma. Niðurstöðum sem nefndin kann að koma fram til skal beina til sveitarstjórnar til ákvörðunar. 2. Atvinnumálanefnd skal fylgja eftir samþykktri stefnu í atvinnumálum hjá Langanesbyggð. 3. Í þeim tilvikum sem sérstakur starfsmaður sinnir atvinnumálum á vegum Langanesbyggðar skal nefndin starfa náið með viðkomandi og tryggja m.a. að starfað sé í samræmi við samþykkta stefnu. 4. Atvinnumálanefnd skal starfa náið með hagsmunaaðilum í atvinnumálum á svæðinu og gefa fulltrúa þeirra kost á að sitja fundi nefndarinnar án atkvæðisréttar. Atvinnumálanefnd skal jafnframt sjá um önnur þau verkefni sem sveitarstjórn felur henni á sviði atvinnumála. Nefndin skal setja sér starfsreglur sem sveitarstjórn staðfestir. Samþykkt á fundi sveitarstjórnar þann 20. febrúar 2007.