Fara í efni

Auglýsing skipulags og umhverfisskýrslu - Urðunarsvæði við Bakkafjörð

Fréttir
Tillaga að deiliskipulagi fyrir urðunarsvæði á Bakkafirði, Langanesbyggð, auk umhverfisskýrslu auglýsist hér með skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Tillaga að deiliskipulagi fyrir urðunarsvæði á Bakkafirði, Langanesbyggð, auk umhverfisskýrslu auglýsist hér með skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Um er að ræða 3,75 ha svæði norðaustan þéttbýlisins á Bakkafirði en með deiliskipulaginu er þar gert ráð fyrir áframhaldandi rekstri urðunar-, námu og geymslusvæðis. Skipulagstillagan var áður auglýst frá 14. maí 2013 til 26. júní 2013. Vegna athugasemda íbúa á Bakkafirði var skipulagið ekki staðfest. Eftir samráð við íbúa og samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar Langanesbyggðar þann 11.12.2014 er deiliskipulagið ásamt umhverfisskýrslu nú endurauglýst með lítilsháttar textabreytingum sem hnykkja á stefnu sveitarstjórnar að urðunarstaðurinn verði einungis nýttur þar til aðrar leiðir til meðhöndlunar og/eða urðunar sorps sveitarfélagsins verða færar, sem stefnt er að verði innan næstu 7-10 ára.

Tillagan verður til sýnis frá og með mánudeginum 19. janúar 2015 til og með mánudeginum 02. mars 2015 á skrifstofu Langanesbyggðar að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn og í anddyri skólahússins að Skólagötu 5 á Bakkafirði. Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist umhverfis-, skipulags- og bygginganefnd eigi síðar en kl. 16.00 mánudaginn 02. mars 2015. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Urðunarsvæðið við Bakkafjörð - Deiliskipulag (tillaga)

Sveitarstjóri Langanesbyggðar.