Fara í efni

Auglýsing um bjargnytjar

Fundur
Langanesbyggð auglýsir til umsóknar heimild til bjargnytja í Skoruvíkurbjörgum samkvæmt neðanskráðu: Úthlutað verður heimild til svartfugls- og ritueggjatöku á eftirtöldum svæðum: Frá Ytri-B

Sigmenn að æfa sigLanganesbyggð auglýsir til umsóknar heimild til bjargnytja í Skoruvíkurbjörgum samkvæmt neðanskráðu: 
Úthlutað verður heimild til svartfugls- og ritueggjatöku á eftirtöldum svæðum: 

Frá Ytri-Bjarghúsum*) að Litla karli (kvöð : 100 egg)
Frá og með Litla karli að Skipagjá (kvöð : 100 egg)

Í Skipagjá
Frá Skipagjá til og með Gatabás
Frá Gatabás að Svínalækjartanga
*) Í samræmi við úrskurð Hæstaréttar 25.11.06 nr. 72/2006.

Umsóknum skal skila í lokuðum umslögum merktum BJARGNYTJAR á skrifstofu Langanesbyggðar að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn.
Umsóknarfrestur er til og með mánudagsins 27. apríl nk. Dregið verður úr umsóknum miðvikudaginn 29.  apríl nk. kl. 12:15 á fundarstofu Langanesbyggðar að viðstöddum þeim umsækjendum sem þess óska.

Skilyrði heimildar eru:
1.     Að umsækjandi eigi lögheimili í Langanesbyggð ásamt því að hafa reynslu af bjargnytjum.
2.     Tilgreina skal í umsókn þá einstaklinga sem hyggjast stunda björgin ásamt umsækjanda og aðeins ein umsókn verður tekin til greina frá hverjum hópi og aðilum innan þess hóps.
3.     Engum einstaklingi eða hópi verður úthlutað meiru en einu svæði (nema að engar umsóknir liggi fyrir, vegna ákveðinna svæða), en frjálst er að sækja um þau öll. Umsækjendur skulu því taka fram í umsókn sinni hvaða svæði þeir vilji fá til vara.
4.     Vafaatriði úrskurðast af sveitarstjórn.

Sú kvöð fylgir bjargnytjum að þeir sem fá þeim úthlutað láti egg af hendi, endurgjaldslaust  til eggjahátíðar í tengslum við sjómannadag á Þórshöfn (200 egg). Nánari útfærsla verður kynnt við úrdrátt umsókna miðvikudagsins 29. apríl nk.

Starfandi sveitarstjóri BGB