Auglýsing um forsetakosningar
Forsetakosningar verða haldnar laugardaginn 25. júní 2016. Frá 15. júní 2016 til kjördags liggur kjörskrá Langanesbyggðar vegna forsetakosninganna frammi á skrifstofu Langanesbyggðar að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn og í versluninni Mónakó að Hafnargötu 4 á Bakkafirði.
Rétt til að kjósa á kjörfundi á kosningadaginn 25. júní 2016, hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá. Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki með mynd. Kjósendum er bent á að mæta tímalega á kjörstað og neyta kosningaréttar síns.
Langanesbyggð er skipt niður í eftirfarandi tvær kjördeildir:
- Kjördeild I Félagsheimilið Þórsver, Þórshöfn
Kjördeild II - Grunnskólinn á Bakkafirði
Kjörfundir hefjast kl 10:00 og þeim líkur kl 22:00. Þó gæti kjörfundur staðið til kl.18:00 samanber 89. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 sem hljóðar svo:
"Atkvæðagreiðslu má ekki slíta fyrr en átta klukkustundir eru liðnar frá því að kjörfundur hófst og ekki fyrr en hálf klukkustund er liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Atkvæðagreiðslu má þó slíta er allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði og eftir fimm klukkustundir ef öll kjörstjórnin og umboðsmenn eru sammála um það, enda sé hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Kjörfundi skal þó eigi slíta síðar en kl. 22 á kjördag. Þeir kjósendur, sem hafa gefið sig fram fyrir þann tíma, eiga þó rétt á að greiða atkvæði."
Allar nánari upplýsingar um framkvæmd forsetakosninganna má finna á upplýsingavefnum http://www.kosning.is/.
Yfirkjörstjórn Langanesbyggðar,
Gunnlaugur Ólafsson sími: 862-2916
Guðrún Stefánsdóttir
Jón Marinó Oddsson
Aðsetur yfirkjörstjórnar er að skrifstofu Langanesbyggðar, Fjarðarvegi 3, Þórshöfn