Auglýsing um lausar kennarastöður í Langanesbyggð
LANGANESBYGGÐ
Grunnskólakennarar Tónlistarkennarar!
Tónlistarskólinn á Þórshöfn
Kennara vantar við skólann frá og með 1. ágúst nk.
Lausar eru eftirtaldar stöður við Grunnskólann á Þórshöfn frá og með 1. ágúst nk.
Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 20. maí nk.........
Kennara vantar til almennrar kennslu og sérkennslu.
Grunnskólinn á Þórshöfn er einsetinn skóli með 70 80 nemendum í hæfilega stórum bekkjardeildum. Á Þórshöfn búa um 400 manns í sérlega fjölskylduvænu umhverfi. Gott og ódýrt íbúðarhúsnæði er til staðar. Á staðnum er öll almenn þjónusta, góður leikskóli og glæsileg íþróttamiðstöð ásamt sundlaug með aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar eru til staðar í ósnortinni náttúru. Samgöngur eru góðar, m.a. er flug fimm daga vikunnar til Reykjavíkur um Akureyri. Upplýsingar gefa Heiðrún Óladóttir, skólastjóri í símum 468 1164 og 893 5836, heidrun@langanesbyggd.is, og Björn Ingimarsson, sveitarstjóri í símum 468 1220 og 895 1448, bjorn@langanesbyggd.is. Lausar eru eftirtaldar stöður við Grunnskólann á Bakkafirði frá og með 1. ágúst nk. Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 20. maí nk. Kennara vantar í almenna kennslu, textílmennt, íþróttir og heimilisfræði. Grunnskólinn á Bakkafirði er einsetinn lítill skóli með 10 - 20 nemendum þar sem mikil áhersla er lögð á að nemendum líði vel og að allir fái nám við sitt hæfi. Á Bakkafirði búa um 100 manns í sérlega fjölskylduvænu umhverfi. Gott og ódýrt íbúðarhúsnæði er til staðar. Á staðnum er góður leikskóli og verslun auk banka- og póstþjónustu. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar eru til staðar í ósnortinni náttúru. Í boði er mjög spennandi starf í metnaðarfullu umhverfi, þar sem starfsaðstaða og aðbúnaður er til fyrirmyndar í alla staði, í mjög barnvænu samfélagi. Upplýsingar gefa María Guðmundsdóttir, skólastjóri í símum 473 1618 og 847 6742, maria@langanesbyggd.is, og Björn Ingimarsson, sveitarstjóri, í símum 468 1220 og 895 1448, bjorn@langanesbyggd.is.