Auglýsing um sveitarstjórnarkosningar 2014
30.04.2014
Fréttir
Á grundvelli 1. mgr. 1. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, með síðari breytingum, fara almennar sveitarstjórnarkosningar fram 31. maí 2014.
Frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi laugardaginn 10. maí 2014. Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast undan endurkjöri skulu tilkynna þá ákvörðun til yfirkjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 5. apríl 2014.
Þetta auglýsist hér með samkvæmt 2. mgr. 1. gr. framangreindra laga.
Nánari upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar 2014 má finna á vefnum www.kosning.is