Fara í efni

Auglýsing um tillögu að Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027 - Endurauglýsing

Fundur
Sveitarstjórn Langanesbyggðar auglýsir hér með tillögu að Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027 ásamt umhverfisskýrslu. Tillagan var áður auglýst þann 7. október 2010 en vegna grundvallarbreytinga e

Sveitarstjórn Langanesbyggðar auglýsir hér með tillögu að Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027 ásamt umhverfisskýrslu. Tillagan var áður auglýst þann 7. október 2010 en vegna grundvallarbreytinga er tillagan endurauglýst skv. 4. m.gr. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.

Tillagan, sem nær til alls sveitarfélagsins, er sett fram í:

  • aðalskipulagsgreinargerð með umhverfisskýrslu
  • þéttbýlisuppdrætti fyrir Þórshöfn í mælikvarða 1:10.000
  • þéttbýlisuppdrætti fyrir Bakkafjörð í mælikvarða 1:10.000
  • sveitarfélagsuppdrætti í mælikvarða 1:50.000

Grundvallarbreytingar felast fyrst og fremst í:

  • afmörkun athafna-, hafnar- og iðnaðarsvæðis ásamt landbúnaðarsvæðis í Finnafirði
  • afmörkun flugvallarsvæðis
  • legu vegar yfir Brekknaheiði
  • afmörkun þéttbýlisuppdráttar Þórshafnar
  • ýmsar smærri breytingar voru einnig gerðar sem gert er grein fyrir í greinargerð.

Tillagan verður til sýnis á skrifstofum Langanesbyggðar, að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn og í anddyri Skólagötu 5 á Bakkafirði frá kl. 9.00 til 15.00 alla virka daga frá 14. maí 2012 til og með 25. júní 2012. Jafnframt verður tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.

Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist sveitarstjóra Langanesbyggðar eigi síðar en kl. 16.00 mánudaginn 25. júní 2012.

Hægt verður að nálgast texta greinargerðarinnar, umhverfisskýrslu og uppdrætti aðalskipulagsins á heimasíðu Langanesbyggðar www.langanesbyggd.is frá og með 14. maí 2012.

Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Sveitarstjóri Langanesbyggðar