Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2012/2013 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 628, 13. júlí 2012
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir:
Sandgerði
Seyðisfjörður
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 1015/2012 í Stjórnartíðindum
Árneshreppur
Sveitarfélagið Skagafjörður (Sauðárkrókur og Hofsós)
Langanesbyggð (Bakkafjörður og Þórshöfn)
Samkvæmt ákvörðun Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, endurauglýsir Fiskistofa eftir umsóknum um byggðakvóta fyrir neðanskráð byggðarlög, skv. ofnanskráðum sérreglum.
Áður innsendar umsóknir gilda.
Snæfellsbær (Arnarstapi, Hellissandur, Rif og Ólafsvík)
Sveitarfélagið Skagaströnd
Sveitarfélagið Hornafjörður
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu ásamt samningi við vinnsluaðila, á eyðublöðum sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (fiskistofa.is), og þar eru ofangreindar reglur einnig aðgengilegar. Umsóknarfrestur er til og með 14. desember 2012.
Fiskistofa, 30. nóvember 2012.