Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2016/2017 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 641, 8. júlí 2016
07.12.2016
Fréttir
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir:
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir:
Vesturbyggð (Patreksfjörður)
Kaldrananeshrepp (Drangsnes)
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 1081/2016 í Stjórnartíðindum.
Sveitarfélagið Ölfus (Þorlákshöfn)
Sveitarfélagið Garður
Vesturbyggð (Brjánslækur, Bíldudalur)
Sveitarfélagið Skagaströnd
Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður)
Langanesbyggð (Þórshöfn, Bakkafjörður)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu ásamt samningi við vinnsluaðila, á eyðublöðum sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (fiskistofa.is), og þar eru ofangreindar reglur einnig aðgengilegar. Umsóknarfrestur er til og með 28. desember 2016.
Fiskistofa, 9. desember 2016.