Fara í efni

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017/2018

Fréttir
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. ákvæðum reglugerðar

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. ákvæðum reglugerðar nr. 604/2017 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018. Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu  nr. 24/2018 í Stjórnartíðindum

  • Tálknafjörð
  • Dalvíkurbyggð (Dalvík, Árskógssandur og Hauganes)
  • Grýtubakkahrepp
  • Langanesbyggð (Þórshöfn og Bakkafjörður) 

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér.  Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér. 

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2018.

Fiskistofa 23. janúar 2018.