Fara í efni

Auglýst eftir umsóknum í byggðakvóta Langanesbyggðar

Fundur
Fiskistofa hefur auglýst eftir umsóknum í byggðakvóta til fiskiskipa á Þórshöfn og Bakkafirði, samkv. ákvæðum reglugerðar nr. 1182/2011 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/201

Fiskistofa hefur auglýst eftir umsóknum í byggðakvóta til fiskiskipa á Þórshöfn og Bakkafirði, samkv. ákvæðum reglugerðar nr. 1182/2011 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012.

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í byggðarlögunum, sbr. auglýsingu nr. 324/2012 í Stjórnartíðunum.

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2012.