Barnalífeyrir vegna náms eða starfsþjálfunar og framlag vegna náms eða starfsþjálfunar
Umsókn um barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar og framlag vegna náms eða starfsþjálfunar fer fram rafrænt á vef Tryggingastofnunar, tr.is, Mínar síður. Með umsókn þarf að fylgja skólavottorð sem sýnir í hve mikið nám umsækjandi er skráður.
Barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar þarf að sækja um á hverri önn og á skólavottorði þarf að koma fram námsárangur á síðustu önn ásamt staðfestingu á fjölda eininga á næstu önn.
Mánaðarleg upphæð greiðslna á árinu 2016 er 29.469 kr.
Afgreiðslutími umsókna er að hámarki 4 vikur eftir að umsókn og öllum fylgigögnum hefur verið skilað inn.
Rétt til barnalífeyris vegna náms eða starfsþjálfunar geta þeir átt sem eru á aldrinum 18-20 ára og eru í námi / starfsþjálfun og búa á Íslandi:
- Ef annað foreldri eða báðir eru lífeyrisþegar.
- Ef annað foreldri eða báðir eru látnir.
- Ef fyrir liggur úrskurður sýslumanns um efnaleysi meðlagsskylds foreldris.
- Ef barn er ófeðrað.
Rétt til framlags vegna náms eiga þeir sem eru á aldrinum 18-20 ára og eru í námi / starfsþjálfun og búa á Íslandi:
- Ef fyrir liggur úrskurður sýslumanns eða samningur staðfestur af honum um að foreldri skuli greiða framlag vegna menntunar.
Nánari upplýsingar á tr.is:
Barnalífeyrir vegna náms eða starfsþjálfunar
Framlag vegna menntunar ungmenna
Mínar síður