Fara í efni

BJARGNYTJAR!

Fundur
20. apríl 2008Langanesbyggð auglýsir til umsóknar heimild til bjargnytja í Skoruvíkurbjörgum samkvæmt neðanskráðu: Úthlutað verður heimild til svartfugls- og ritueggjatöku á eftirtöldum svæðum:&n

20. apríl 2008
Langanesbyggð auglýsir til umsóknar heimild til bjargnytja í Skoruvíkurbjörgum samkvæmt neðanskráðu: 

Úthlutað verður heimild til svartfugls- og ritueggjatöku á eftirtöldum svæðum: 

Frá Ytri-Bjarghúsum*) að Litla karli (kvöð : 100 egg)

Frá og með Litla karli að Skipagjá (kvöð : 100 egg)

Í Skipagjá
Frá Skipagjá til og með Gatabás

Frá Gatabás að Svínalækjartanga

 *) Í samræmi við úrskurð Hæstaréttar 25.11.06 nr. 72/2006.

 Umsóknum skal skila í lokuðum umslögum merktum BJARGNYTJAR á skrifstofu Langanesbyggðar að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn. 

Umsóknarfrestur er til og með mánudagsins 28. apríl nk.  Dregið verður úr umsóknum þriðjudaginn 29.  apríl nk. kl. 12:15 á fundarstofu Langanesbyggðar að viðstöddum þeim umsækjendum sem þess óska.

Skilyrði heimildar eru:

1.     Að umsækjandi eigi lögheimili í Langanesbyggð ásamt því að hafa reynslu af bjargnytjum.

2.     Tilgreina skal í umsókn þá einstaklinga sem hyggjast stunda björgin ásamt umsækjanda og aðeins ein umsókn verður tekin til greina frá hverjum hóp.

3.     Engum einstaklingi eða hóp verður úthlutað meiru en einu svæði, en frjálst er að sækja um þau öll.

4.     Vafaatriði úrskurðast af sveitarstjórn.

Sú kvöð fylgir bjargnytjum að þeir sem fá þeim úthlutað láti egg af hendi, endurgjaldslaust  til eggjahátíðar í tengslum við sjómannadag á Þórshöfn (200 egg). Nánari útfærsla verður kynnt við úrdrátt umsókna þriðjudaginn 29. apríl nk.

Sveitarstjóri