Bjargnytjar 2014
Langanesbyggð auglýsir til umsóknar heimild til bjargnytja í Skoruvíkurbjörgum samkvæmt neðanskráðu: Úthlutað verður heimild til svartfugls- og ritu eggjatöku á eftirtöldum svæðum:
Eggjataka: (Svartfuglsegg)
1. *)Frá Ytri-Bjarghúsum í botn að Ystanefi ( 50 egg )
2. Frá Ystanefsbotni að Skipagjá ( 50 egg )
3. Eggjataka við Selhellu ( 50 egg )
Eggjataka:
Skegluegg(Rituegg)
4. Í Skipagjá ( 20 egg )
5. Frá Skipagjá til og með Gatabás ( 20 egg )
6. Frá Gatabás að Svínalækjatanga ( 20 egg )
*) Í samræmi við úrskurð Hæstaréttar 25.11.06 nr. 72/2006.
Umsóknum skal skila í lokuðum umslögum merktum "BJARGNYTJAR" á skrifstofu Langanesbyggðar að Fjarðarvegi 3 á
Þórshöfn. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Langanesbyggðar fyrir miðvikudaginn 30 april nk. kl.10:00 og verður
dregið úr umsóknum að viðstöddum þeim umsækjendum sem þess óska kl.12.00 sama dag.
Skilyrði heimilda eru:
1. Að umsækjandi eigi lögheimili í
Langanesbyggð ásamt því að hafa reynslu af bjargnytjum.
2. Tilgreina skal í umsókn þá einstaklinga sem hyggjast stunda björgin ásamt umsækjanda og aðeins ein umsókn verður tekin til greina
frá hverjum hópi og aðilum innan þess hóps.
3. Engum einstaklingi eða hóp verður úthlutað meiru en einu svæði(nema að engar umsóknir liggi fyrir, vegna ákveðinna svæða), en
frjálst er að sækja um þau öll. Umsækjendur skulu því taka fram í umsókn sinni hvaða svæði þeir vilji fá til
vara.
4. Vafaatriði úrskurðast af sveitarstjóra. Sú kvöð fylgir bjargnytjum að þeir sem fá þeim úthlutað láti egg af hendi,
endurgjaldslaust til eggjahátíðar í tengslum við sjómannadag á Þórshöfn og til átthagafélags Þórshafnar( gegn
afláttargjaldi ). Nánari útfærsla verður rædd við úrdrátt umsókna miðvikudaginn 30 apríl nk.
5. Ekki er heimilt að taka svartfuglsegg eftir 31. maí.
Þórshöfn 16. apríl 2014
Sveitarstjóri Langanesbyggðar