Bjargnytjar 2019
Langanesbyggð auglýsir til umsóknar heimild til bjargnytja í Skoruvíkurbjörgum samkvæmt neðanskráðu:
Úthlutað verður heimild til svartfugls- og ritu eggjatöku á eftirtöldum svæðum:
Eggjataka: (Svartfuglsegg)
1.*)Frá Ytri-Bjarghúsum í botn að Ystanefi ( 50 egg )
2. Frá Ystanefsbotni að Skipagjá ( 50 egg )
3. Eggjataka við Selhellu ( 50 egg )
Eggjataka: Skegluegg(Rituegg)
4. Í Skipagjá ( 20 egg )
5. Frá Skipagjá til og með Gatabás ( 20 egg )
6. Frá Gatabás að Svínalækjatanga ( 20 egg )
*) Í samræmi við úrskurð Hæstaréttar 25.11.06 nr. 72/2006.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Langanesbyggðar að Fjarðarvegi 3, Þórshöfn í lokuðum umslögum merkt “BJARGNYTJAR 2019” fyrir kl. 10:00 föstudaginn 3. maí 2019. Dregið verður úr umsóknum kl.12.00 sama dag að viðstöddum þeim umsækjendum sem þess óska.
Skilyrði/reglur úthlutunar eru:
-
Að umsækjandi eigi lögheimili í Langanesbyggð ásamt því að hafa reynslu af bjargnytjum.
-
Að tilgreindir séu í umsókn þeir einstaklingar sem hyggjast stunda björgin ásamt umsækjanda. Aðeins ein umsókn verður tekin til greina frá hverjum hópi og/eða aðilum innan hóps.
-
Frjálst er að sækja um öll svæði en engum einstaklingi eða hópi verður úthlutað meiru en einu svæði (nema engar umsóknir liggi fyrir vegna ákveðinna svæða). Umsækjendur skulu taka fram í umsókn sinni hvaða svæði þeir vilja helst fá og annað til vara.
-
Vafaatriði úrskurðast af sveitarstjóra á úthlutunarfundi.
-
Ekki er heimilt að taka svartfuglsegg á úthlutuðum svæðum eftir 31. maí.
Sú kvöð fylgir bjargnytjum að þeir sem fá þeim úthlutað láti egg af hendi, endurgjaldslaust til eggjahátíðar í tengslum við sjómannadag á Þórshöfn og til átthagafélags Þórshafnar (gegn afslætti). Nánari útfærsla verður rædd við útdrátt umsókna kl. 12. föstudaginn 3. maí.
Þórshöfn 16. apríl 2019
Sveitarstjóri