Fara í efni

Bjargnytjar í Langanesbyggð 2012

Fundur
Langanesbyggð auglýsir til umsóknar heimild til bjargnytja í Skoruvíkurbjörgum árið 2012.Úthlutað verður heimild til svartfugls- og ritueggjatöku á eftirtöldum svæðum: - Frá Ytri-Bjarghúsum*) að Skál

Langanesbyggð auglýsir til umsóknar heimild til bjargnytja í Skoruvíkurbjörgum árið 2012.

Úthlutað verður heimild til svartfugls- og ritueggjatöku á eftirtöldum svæðum:

- Frá Ytri-Bjarghúsum*) að Skálmu (kvöð: 100 egg)

- Frá og með Skálmu að Skipagjá (kvöð: 100 egg)

Í Skipagjá:

- Frá Skipagjá til og með Gatabás

- Frá Gatabás að Svínalækjartanga

*) Í samræmi við úrskurð Hæstaréttar 25.11.06 nr. 72/2006.

Umsóknum skal skila í lokuðum umslögum merktum BJARGNYTJAR" á skrifstofu Langanesbyggðar að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn, fyrir fimmtudaginn 3.maí nk. kl.12:00 en þá verður dregið úr umsóknum að viðstöddum þeim umsækjendum sem þess óska.

Skilyrði heimildar eru:

  • Að umsækjandi eigi lögheimili í Langanesbyggð ásamt því að hafa reynslu af bjargnytjum.
  • Tilgreina skal í umsókn þá einstaklinga sem hyggjast stunda björgin ásamt umsækjanda og aðeins ein umsókn verður tekin til greina frá hverjum hóp og aðilum innan þess hóps.
  • Engum einstaklingi eða hóp verður úthlutað meiru en einu svæði (nema að engar umsóknir liggi fyrir, vegna ákveðinna svæða), en frjálst er að sækja um þau öll. Umsækjendur skulu því taka fram í umsókn sinni hvaða svæði þeir vilji fá til vara.

Vafaatriði úrskurðast af sveitarstjórn.

Sú kvöð fylgir bjargnytjum að þeir sem fá þeim úthlutað láti egg af hendi, endurgjaldslaust, til eggjahátíðar í tengslum við sjómannadag á Þórshöfn (200 egg). Nánari útfærsla verður kynnt við úrdrátt umsókna fimmtudaginn 3. maí nk.

Þórshöfn 16. apríl 2012

Sveitarstjóri