Björgunarsveitir leita að týndum sjómanni
13.04.2007
Tónleikar
12.04.2007Að sögn Landsbjargar stendur yfir leit björgunarsveita að sjómanni sem saknað er eftir að bátur hans fannst mannlaus í stórgrýti í fjöru austan megin í Vopnafirði. Fyrr í gærkvöldi hófst eft
12.04.2007
Að sögn Landsbjargar stendur yfir leit björgunarsveita að sjómanni sem saknað er eftir að bátur hans fannst mannlaus í stórgrýti í fjöru austan megin í Vopnafirði.
Fyrr í gærkvöldi hófst eftirgrennslan eftir bátnum að beiðni Vaktstöðvar siglinga þar sem ekki náðist fjarskiptasamband við hann.
Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Sveinbjörn Sveinsson frá Vopnafirði, var kallað út og fann það bátinn klukkan 23:15, mitt á milli Kattárvíkur og Fles út af Kollamúla í Vopnafirði. Nokkuð erfiðlega gekk að komast að bátnum en nokkru eftir miðnætti kom í ljós að strandaði báturinn var mannlaus.
10 björgunarsveitir hafa verið boðaðar til leitar á landi og sjó og verða björgunarskip, vélsleðar og göngufólk
mbl.is