Body Combat hefst í íþróttahúsinu í dag !
06.04.2009
Fundur
Jæja gott fólk, bæði stelpur og strákar. Nú ætla Jóhanna og Sólrún að hafa Body Combat í íþróttahúsinu um páskana. Það þurfa nú allir að ná blessaða páskaegginu af sér ekki satt?Þessir tímar innihalda
Jæja gott fólk, bæði stelpur og strákar. Nú ætla Jóhanna og Sólrún að hafa Body Combat í íþróttahúsinu um páskana. Það þurfa nú allir að ná blessaða páskaegginu af sér ekki satt?
Þessir tímar innihalda hreyfingar og stöður úr ýmsum sjálfsvarnaríþróttum eins og karate, boxi og taekwondo og þeir eru frá Les Mills. Þetta eru skemmtilegir tímar með góðri tónlist, bjáluð brennsla og fjör. Það geta allir verið með í þessum tímu, bæði ungir sem aldnir. Það eiga allir að mæta með páskaskapið og skemmta sér konunglega. Tímarnir verða sem hér segir:
Mánudagur 6. apríl klukkan 17:00
Miðvikudagur 8. apríl klukkan 17:00
Laugardagur 11. apríl klukkan 11:00
Mánudagur 13. apríl klukkan 11:00
Hvetjum alla til að koma og prófa núna fyrir sumarið.
Jóhanna og Sólrún