Breyting á aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027
07.08.2018
Fréttir
Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 31.júlí 2018 að kynna skipulagslýsingu
Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 31. júlí 2018 að kynna skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027.
Breytingin er vegna fjölgunar efnistökusvæða til viðhalds og uppbyggingar vega í sveitarfélaginu.
Lýsingin er aðgengileg hér auk þess að liggja frammi á skrifstofunni að Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn.
Athugasemdir ef einhverjar eru berist til skrifstofu sveitarfélagsins eigi síðar en 21. ágúst 2018 eða á netfangið langanesbyggd@langanesbyggd.is
Sveitarstjóri