Fara í efni

Brjóstaskimun í samstarfi við Heilsugæsluna á Þórshöfn þann 24. september

Fréttir

Brjóstamiðstöð Landspítalans er með brjóstaskimun í samstarfi við Heilsugæsluna á Þórshöfn þann
24. september 

Brjóstamiðstöð Landspítala verður í samstarfi við Heilsugæsluna á ferð um landið haustið 2024 með brjóstaskimun. Lögð er rík áhersla á að konur nýti sér þessa þjónustu, sjá leiðbeiningar um bókun hér að neðan.

Með brjóstaskimun er hægt að greina brjóstakrabbamein á byrjunarstigi og draga þannig verulega úr dánartíðni vegna sjúkdómsins.
Áhersla er lögð á að konur nýti sér þjónustuna sem er að jafnaði í boði á hverjum stað árlega eða á tveggja ára fresti.
Bókun á brjostaskimun@landspitali.is eða í síma 543 9560 kl. 8:30–12:00 og 13:00 – 15:30 virka daga.