Fara í efni

Brunavarnir Langanesbyggðar

Fréttir
Kæru íbúar Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps Nú fer að líða að jólum og þá er lag að yfirfara brunavarnirnar á heimilum okkar, því þar eru jú mestu verðmæti landsins, þ.e.a.s. börnin okkar og við sjálf.

Kæru íbúar Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps 

Nú fer að líða að jólum og þá er lag að yfirfara brunavarnirnar á heimilum okkar, því þar eru jú mestu verðmæti landsins, þ.e.a.s. börnin okkar og við sjálf.

Hér eru svo nokkrir punktar sem við þurfum að yfirfara:
* REYKSKYNJARI Í LAGI!!!
* REYKSKYNJARI Í LAGI!!!
* Skipta um rafhlöður í öllum reykskynjurum á hverju ári.
* Endurnýja reykskynjara á 10 ára fresti.
* Prófa alla reykskynjara minnst tvisvar á ári
* Hafa slökkvitæki sem næst útihurð á áberandi stað
* Minnst 9 lítra léttvatnstæki eða 6 kg dufttæki.
* Eldvarnarteppi í öll eldhús. Skoða teppin árlega. 

Að lokum viljum við óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

 

Slökkvilið Langanesbyggðar,