Fara í efni

Dansnámskeið

Fundur
Fyrir byrjendur og lengra komnaDanskennarinn Anna Breiðfjörð kennir dans í félagsheimilinu Þórsveri á Þórshöfn ef næg þátttaka næst, dagana 5. 8. febrúar nk. eða sem hér segir:Fimmtudaginn 5. febrúar&

Fyrir byrjendur og lengra komna

Danskennarinn Anna Breiðfjörð kennir dans í félagsheimilinu Þórsveri á Þórshöfn ef næg þátttaka næst, dagana 5. 8. febrúar nk.
eða sem hér segir:

  • Fimmtudaginn 5. febrúar       kl. 20:00 23:00
  • Föstudaginn 6. febrúar           kl. 20:00 23:00
  • Laugardaginn 7. febrúar        kl. 11:00 14:00
  • Sunnudaginn 8. febrúar          kl. 11:00 14:00

Ýmsir dansar verða kenndir, t.d. jive, tjútt, samba,

línudans, bluse, salsa, ræll, skottís, vals og tangó, eða allt eftir áhuga fólks.

Allir mæta í fyrsta tímann og þá er kennslan skipulögð svo bæði byrjendur

og lengra komnir fái kennslu við hæfi.

 

Verð er kr. 1.400 á mann fyrir hvert skipti, greiðist á staðnum. Athugið að posi er ekki á staðnum.

Skráning í síma 869-2032 (Linda) eða 892-8202 (Halldóra), ekki síðar en sunnudaginn 1. febrúar.

Nú er um að gera að læra og liðka sig fyrir þorrablótin!

Íþrótta- og tómstundanefnd Langanesbyggðar