Fara í efni

Djúphitunarklefi í íþróttahúsinu

Fréttir
Nú er kominn djúphitunarklefi í íþróttahúsið sem notast við infrarauða ljós sem hita líkamann. Þetta er sérstaklega gott fyrir gigtarsjúklinga, vöðvabólgu og vefjagigt. Á netinu m.a. má finna þessar upplýsingar:

Nú er kominn djúphitunarklefi í íþróttahúsið sem notast við infrarauða ljós sem hita líkamann. Þetta er sérstaklega gott fyrir gigtarsjúklinga, vöðvabólgu og vefjagigt. Viðtökurnar hafa verið mjög góðar að sögn Eyþórs og nú hefur Verkalýðsfélag Þórshafnar ákveðið að niðurgreiða 10 tíma kort í þetta töfratæki. Á netinu m.a. má finna þessar upplýsingar: 

Infra-rauður klefi


Hvernig virkar infra-rauði klefinn?
Hefðbundin sauna flytur hitann með því að dreifa heitu lofti og hita líkamann þannig frá toppi til táar en infrarauðir ljósgeislar hita líkamann beint með djúphitun sem er við þægilegra hitastig (43-60°C) og hefur betri áhrif á heilsuna. Geislarnir fara um 4.5 cm inn í líkamann og örva innstu vefi og líffæri þannig að maður svitnar mun meira en í hefðbundinni sánu og líkaminn losar sig við óhreinindi sem erfitt er að losna við.

Infra-rauður ljósgeisli þýðir í raun djúphitun.
 
Infra-rauðir ljósgeislar
Kostir infra-rauðrar meðferðar hafa verið rannsakaðir í marga áratugi í Japan, Evrópu og Bandaríkjunum.
Infra-rauðir ljósgeislar eru m.a. notaðir á sjúkrahúsum til að halda hita á nýfæddum börnum.
Þeir sem nota infra-rauða klefa mikið hafa séð að infra-rauðir ljósgeislar: 

- Losa eiturefni úr líkamanum
- Auka virkni ónæmiskerfisins
- Styrkja hjarta- og æðakerfið
- Auka blóðflæði 
- Auka súrefnisflæði
- Bæta útlit húðarinnar
- Styrkja öndunarfærin
- Brenna kaloríum
- Auka liðleika liða 
- Hjálpa við fitulosun og minnka cellulite
- Hækka sársaukaþröskuld
- Lækka blóðþrýsting
- Lækka blóðsykur
- Lækka kólesteról
- Minnka verki
- Hjálpa til við að minnka bólgur og bjúg