Dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust á Þórshöfn óskar eftir einstakling í sumarafleysingar sumarið 2016.
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust á Þórshöfn óskar eftir einstakling í 70-100% starf í sumarafleysingu . Umsækjandi þarf að geta hafið störf 25. maí eða samkvæmt nánara samkomulagi. Starfið felst í umönnun aldraðra og öðrum tilfallandi störfum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttafélags. Um er að ræða vaktavinnu.
Á Nausti eru 13 íbúar. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og hafa gaman að því að umgangast eldra fólk. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu. Íslenskukunnátta er nauðsynleg.
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 22. apríl 2016. Umsóknareyðublað má nálgast með því að smella hér. Umsóknum má skila inn til forstöðumanna dvalarheimilisins eða koma því til skrifstofu Langanesbyggðar.
Nánari upplýsingar gefa Sólrún Siggeirsdóttir, hjúkrunarforstjóri og/eða Sigríður Jóhannesdóttir rekstrarstjóri í síma 468-1322.