Fara í efni

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust á Þórshöfn óskar eftir starfsmanni

Fréttir
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust á Þórshöfn óskar eftir starfsmanni í afleysingu. Starfið felst í

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust á Þórshöfn óskar eftir starfsmanni í afleysingu. Starfið felst í umönnun aldraðra og önnur tilfallandi störf. Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins við viðkomandi stéttafélag. Um er að ræða vaktavinnu og til langs tíma.

Á Nausti eru 14 íbúar. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og hafa gaman að því að umgangast eldra fólk. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu. Íslenskukunnátta er nauðsynleg.

Nánari upplýsingar gefur Sólrún Arney Siggeirsdóttir, hjúkrunarforstjóri í síma 468-1322.