Fara í efni

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust á Þórshöfn óskar eftir starfsmanni í umönnun

Fréttir
Naust-dvalarheimili aldraðra
Naust-dvalarheimili aldraðra
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust á Þórshöfn óskar eftir starfsmanni í 50% starf

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust á Þórshöfn óskar eftir starfsmanni í 50% starf við umönnun. Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Um er að ræða vaktavinnu. 
Á Nausti eru 14 íbúar. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og hafa gaman að því að umgangast eldra fólk. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu. Íslenskukunnátta er nauðsynleg. 
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 22. júlí 2016.
Umsóknareyðublað má nálgast með því að smella hér.
Umsóknum má skila inn til forstöðumanna dvalarheimilisins eða koma því til skrifstofu Langanesbyggðar. 

Nánari upplýsingar gefa Sólrún Siggeirsdóttir, hjúkrunarforstjóri og/eða Sigríður Jóhannesdóttir rekstrarstjóri í síma 468-1322.