Eldsneytissala hafin á ný á Þórshöfn
16.12.2016
Fréttir
Eins og flestum ætti að vera kunnugt varð alvarlegur bruni
Eins og flestum ætti að vera kunnugt varð alvarlegur bruni á Þórshöfn aðfaranótt þriðjudags, þegar Grillskáli N1 brann til grunna. Mikil mildi var að engin slys urðu við slökkvistörf þar sem veruleg sprengihætta var fyrir hendi. Sveitarstjórn hefur nú komið á framfæri sérstökum þökkum til slökkviliðs Langanesbyggðar og Björgunarsveitarinnar Hafliða, fyrir þeirra mikilvæga starf á vettvangi. Eldsneytissala hófst á ný um hádegisbil í gær og er forsvarsmönnum N1 þökkuð skjót viðbrögð