Fara í efni

Elska – Ástarsögur Þingeyinga

Fréttir
Einleikurinn, Elska, er unnin upp úr ástarsögum Þingeyinga. Í verkinu eru sannar ástarsögur okkar tíma dregnar fram í dagsljósið. Einleikurinn verður sýndur í Þórsveri á Þórshöfn föstudaginn 13. desember n.k.

Eru einkenni sannrar ástar þau sömu í dag og þau voru um miðbik síðustu aldar?
Hafa þau breyst?
Eða hefur skilgreining okkar á sannri ást breyst í gegnum tíðina?
Hvað hefur breyst?

Einleikurinn, Elska, er unnin upp úr ástarsögum Þingeyinga. Í verkinu eru sannar ástarsögur okkar tíma dregnar fram í dagsljósið. Þeim er miðlað í leikverki sem flutt verður í desember í sveitarfélögunum í Þingeyjarsýslum. Verkið byggir á viðtölum við pör og einstaklinga, á aldrinum 24-78 sem tekin voru upp síðla sumars og haustið 2013. Jenný Lára hefur unnið handritið upp úr þeim upptökum.  

Leikurinn er einnig í höndum Jennýjar Láru, en í persónusköpun styðst hún einnig við upptökurnar. 
Verkefnið er unnið með styrk frá Aftur heim.

Sýningar verða sem hér segir:
6. des. Safnahúsið, Húsavík, 20:00
7. des. Sólvangur, Tjörnesi, 20:30
8. des. Gamli skólinn, Grenivík, 17:00
12. des. Skjólbrekka, Mývatnssveit, 20:00
13. des. Þórsver, Þórshöfn, 20:00
14. des. Breiðamýri, Þingeyjarsveit, 20:00 

Miðaverð 2.000 kr. - Miðapantanir á hrafnstjarna@gmail.com / s: 8476921

Sjá auglýsinguna í heild sinni hér