Elvis lifir!
22.02.2012
Fundur
Mikil múgæsing greip um sig í Grunnskólanum á Þórshöfn í morgun þegar sjálfur Elvis Presley mætti á svæðið og tók nokkur lög. Kúrekar og trúðar, hippar og lúðar, prinsessur og rónar, nunnur og dónar f
Mikil múgæsing greip um sig í Grunnskólanum á Þórshöfn í morgun þegar sjálfur Elvis Presley mætti á svæðið og tók nokkur lög. Kúrekar og trúðar, hippar og lúðar, prinsessur og rónar, nunnur og dónar fylgdu í kjölfarið en einnig mátti sjá Grýlu skjótast um skólann ásamt hafmeyju, fjósakonu og sjálfum Batman. Harry Potter, Lína langsokkur og Karíus og Baktus létu sig heldur ekki vanta.
Upp er runninn Öskudgur ákaflega skýr og fagur
Einn með poka ekki ragur
Úti vappar heims um ból
Góða daginn og gleðileg jól
Úmbarassa Úmbarassa, úmbarassa, sa
Úmbarassa Úmbarassa, úmbarassa, sa.
Þessar furðuverur munu leggja leið sína í bæinn eftir hádegið í dag og skemmta bæjarbúum með söng.